Færslur: 2007 September

16.09.2007 20:14

hólí Mólí

Þegar ég fór yfir til mömmu í morgun fékk ég þær fréttir að Lilja væri komin með Strepptakokkasýkingu.

Ég varð nú pínu smeyk þar semþað getur verið hættulegt að vera með þessa sýkingu á meðgöngu og lika það að akkúrat í morgun vaknaði ég með hálsbólgu, einnig var ég búin að vera mjög aum í eitlunum ínokkra daga.

Það var bara ekkert annað í stöðunni en að skella sér niðrá læknavakt og láta taka stroku úr hálsinum. Það var alveg ógislega mikið að gera og alveg klukkutíma bið.Ég varmeð Eygló með mér en sem betur fer leiddist henni ekki við aðskoða allt dótið og fólkið í kring.

Það kom svo loksins að okkur og læknirinn tók stroku úr hálsinum á mér og svoleiðis. Hann sá reyndar ekkert á prufunni en sagði að þar sem ég byrjaði baraí morgun að fá í hálsinn væri þetta líklegast á byrjunarstigi og ég var með bólgna eitla og þá vildi hann setja mig á pensillín.

Hann sagði mér líka að hafa ekki áhyggjur af Eygló nema ef hún fengi hita og hálsbólgu.

þetta eralveg nastý sýking sko, ég fékk svona einu sinni og var með 40 stiga hita í viku ogvar að dreeepast í hálsinum. Ég geri bara eins og mér er sagt að gera og tek þessi ´syklalyf og þá þarf ég engar áhyggjur að hafa.

Seinni partinn fór ég svo í smáralindina að finna kuldaskó á Eygló. En ég tímdi ekki að kaupa skó á 8000kr á hana svo ég fan enga skó þar. Ég ætla að kíkja í aðra búð í kringlunni á morgun og sjá hvort það sé ekki eitthvað til.

14.09.2007 11:36

Ótitlað

það er dáldið langt síðan ég skrifaði hér síðast, en það er einfaldlega út af því að ég hef ekki nennt því

En hvað er búið að vera að gerast?

hmmm...........

Ég er búin að fara í skoðun og allt kom ágætlega út. Ég er búin að vera að stelast pínu í óhollustuna Ekki mikið samt..... það var aðallega í gær.Ég er farin að læra á það hvað ég þoli mikið af óhollustu. Ég fann það nenbilega um helgina þegar ég fór í afmæli og borðaði óvart smá popp og snakk og kók, daginn eftir leið mér alls ekki vel í maganum þó mér væri kannski ekkert illt nema bara aðeins um morguninn þío var ég óróleg í maganum og var frekar slöpp þann daginn. En þrýstingurinn hefur verið fínn.

Eygló er ekki enn komin inn á leikskólann ég hringdi þangað um daginn og þá var mér sagt að hún ætti að komast inn um mánaðrmótin, ég vona að það sé rétt því húnátti jú líka að komast inn um síðustu mánaðarmót.

Er búin að fara á djammið og spila póker á A.Hansen svaka fjör Fórum svo og settumst á Bellys í miðbænum og spjölluðum saman. Um kl 2 var ákveðið að halda heim og ég var ALVEG búin á því 

Barnaafmæla törnin er byrjuð. Erum búnar að fara í 2 afmæli núna í september og svo er næsta reyndar ekki fyrr en í okt og svo er það bara Eyglóar afmæli jeij ótrúlegt að barnið er að verða 2ja ára! svo fljótt að líða áður en við vitum af verður hún orðin fullorðin með mann og börn sjálf! ókei kannski ekki alveg,vonandi er alalveg svona 15 ár í það.

Örbylgjuofninn gaf upp öndina í gær. Óli var að hita eitthvað þegar það blossaði upp úr örbylgjuofninum, við tókum hann úr sambandi prufuðum svo aftur að setja hann í samband, þá var hann bara alveg dauður greyið  Það er svo þægilegt að vera með örbylgjuofn, en maður hlýtur að komast af án hans, allavega þangað til við fáum okkur nýjan.

jæja best að gera eitthvað af viti!

03.09.2007 21:39

jæja já

úff! vaknaði í morgun og fannst eins og ég hefði ekkert sofið alla nóttina samt var Eygló voða góð við mömmu sína og leyfði henni að kúra upp í rúmi þangað til klukkan var að ganga 9. Var samt handónýt allan morguninn.Við dröttuðumst svo út í vonda veðrið og þá hresstist ég nú aðeins við. Er að leka niður úr þreytu núna.

Afi  er veikur og liggur á spítala, hann fékk víst kransæðastíflu og átti að fara í aðgerð í dag,en svo kom víst í ljós að þetta var eitthvað alvarlegra og hann þyrfti að fara í stærri aðgerð, en það er áhætta fyrir hann þar sem hann er orðinn svo gamall.

Ég viðurkenni alveg að ég er ekki búin að vera besta barnabarn í heimi og ég er alveg með móral út af því Svo  sýnist mér vera rifrildi í aðsigi í fjölskyldunni, því hún amma getur ekki verið ein á meðan afi er á spítala og þess vegna verða börnin þeirra að skiptast á að vera með henni, en þau þurfa víst líka að vinna og þetta getur orðið smá mál.

Mig kvíður dáldið fyrir morgundeginum því ég þarf að fara niðrí bæ (sem ég ÞOLI ekki) og finna einn stað sem ég hef ekki hugmynd um hvar er!

*arrrg*

01.09.2007 12:59

**brrrrrrrrKulllldi** :(

Ohh það er orðið svoo kalt  mér er bara virkilega farið að vanta úlpu!!! Allavega ætla ég í kringluna á eftir og kaupa úlpu á Eygló mína og kannski hlýja skó handa mér.

Allt gekk vel hjá Lækninum í gær og ég ætti kannski að fara að segja frá því fyrir þá sem ekki vita eða hafa ekki fattað að þá er annað kríli á leiðinni hjá okkur.

Mikil Hamingja hér á bæ en einnig stress bara svona út af fyrri sögu og svona. Ég er komin 13 vikur á leið og er búin að fara í 2 mæðraskoðanir og hnakkaþykktarmælingu. Í fyrri skoðun var ég með aðeins hækkaðan þrýsting og smá sykur í þvagi, það var alveg ærlegt spark í rassinn! Og ég fór að taka matarræðið í gegn, aðallega er ég þá að hætta að borða nammi og drekka kók svo reyni ég að borða lítið af unnum kjötvörum. Það hefur gengið vel og ég get sleppt öllu namminarti á daginn, Á kvöldin er það hinsvegar önnur saga........þá VERÐ ég að fá eitthvað nart þá fæ ég mér kanski ís eða eitthvað og fæ mér svo epli, en ég fer yfirleitt svöng í háttinn 
Ég keypti mér líka Blóðþrýstingsmæli og er búin að vera að mæla mig sjálf. Hér heima hefur þrýstingurinn haldið sér góðum.Ég vona að þetta hafi verið eitthvað stress í mér í fyrstu skoðununni.

Já og Svo fór ég til Hómópata Það var virkilega fín kona sem lét mig fá remedíur við allskonar kvillum. Remedíur eru litlar sykurtöflur sem maður setur undir tunguna og lætur bráðna. Ég fékk töflur til að halda jafnvægi á þrýstingnum, þar var svona aðalatriðið en svo fékk ég líka við bjúg, bakverkjum ogvítamín.

Í gær var svo skoðun nr 2 þá hitti ég lækni og sem betur fer þurfti ég ekki að fara á lyf við þrýstingnum.hann var 125/85 í gær það er bara fínt svo fékk ég að heyra hjartsláttinn loksins það var bara æði.
Aftur var sykur í þvagi þótt ég hafi ekki verið búin að borða neinn sykur borðaði bara 2 brauðsneiðar með osti og vatn í morgunmat læknirinn sagði að þetta væri ekki sykursýki heldur eru nýrun að leka sykri og ég gæti þurft seinna að fara í frekari rannsóknir á nýrnaskálunum, gæti verið þetta sem er að valda háum þrýstingi hjá mér.

Ég fer víst ekki að vinna aftur í bráð. Það mndi hvort sem er enginn vilja ráða ólétta konu með mína fyrri sögu. Enda finnst mér ágætt að geta verið heima og einmbeitt mér að því að hugsa um sjálfan mig.

jæja allavega þá er þetta orðið nógu langt hjá mér.

  • 1
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 30709
Samtals gestir: 11736
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:05:41

Jólin Koma

atburður liðinn í

4 ár

4 mánuði

23 daga

clockhere

Eygló á afmæli

atburður liðinn í

4 ár

6 mánuði

7 daga

Um mig

Nafn:

Kristín Jóna

MSN netfang:

kristin_jong@hotmail.com

Afmælisdagur:

14 Ágúst

Heimilisfang:

Kópavogur

Uppáhalds manneskjur:

Eygló Hulda (auðvitað doooohhh) og óli minn og svo þykir mér vænt alveg ofboðslega marga

Uppáhalds matur:

Ruslfæði er mitt uppáhalds:)

Eftirminnilegast:

Fæðing krúttsins míns

Tenglar